|
Post by regnbogabaun on Aug 18, 2018 21:58:05 GMT
Sælar! Ég er 33 ára og vinn á leikskóla. Ég á tæplega 4 ára strák úr fyrra sambandi. Þetta er í 3ja skiptið sem ég og kærastinn minn höfum orðið ólétt en við misstum í hin skiptin. Við erum bæði auðvitað ótrúlega spennt og stressuð fyrir þessari óléttu. Við vorum ekki að nota neinar varnir svo þessi baun mátti alveg endilega koma! Það er ótrúlega erfitt að hella sér ekki í nafnapælingar eða skoða óléttubókina því við vitum hvað það er sárt að vera farin að plana og undirbúa hluti ef það er síðan enginn hjartsláttur í næsta sónartíma. Þegar ég átti strákinn minn var ég einstæð svo ég hlakka mikið til að standa ekki í þessu öllu saman ein núna.
|
|
litla
New Member
Posts: 10
|
Post by litla on Aug 19, 2018 8:39:40 GMT
Ég er 31 árs og eigum við maðurinn minn eina stelpu sem er 2ja og hálfs árs, mikil spenna fyrir komandi tímum og kom okkur svolítið á óvart að þetta reynirí tók bara 3 hringi en með stelpuna tók það alveg 13 hringi.
|
|
april
New Member
Posts: 10
|
Post by april on Aug 19, 2018 15:56:53 GMT
Ég er 34 og þetta er fyrsta barn hjá okkur báðum, svo það er mikil spenna hér á bæ og vonandi á þetta eftir að ganga vel Ég hef aldrei verið ólétt áður, þannig að þetta er allt svo nýtt, skrítið og spennandi!
|
|
dabba
New Member
Posts: 10
|
Post by dabba on Aug 19, 2018 21:55:59 GMT
Ég er 25 ára og fyrir eigum við eina skvísu sem verður 3ja ára núna í haust. Ég er í kennaranámi og er að fara kenna minn annan vetur núna í vetur. Planið var alltaf að eignast annað barn 2019 svo við erum mjög spennt fyrir stækkandi fjölskyldu
|
|
|
Post by thridja on Aug 20, 2018 12:41:34 GMT
Ég er 31 árs og á tvö börn með eiginmanninum, þetta verður dekurdýr þar sem hin eru 9 og 11 ára Hlakka til að kynnast ykkur og til hamingju 😍
|
|
|
Post by Vorboðinn on Aug 23, 2018 16:05:08 GMT
Sælar Ég er 29 ára og vinn sem lögmaður. Á fyrir 1 næstum 4 ára skottu (2014). Planið var alltaf að eignast annað barn á næstunni og lét ég taka lykjuna úr í maí sl. Bjóst svo engan vegin við að þetta tæki svona stuttan tíma en það tók um 1,5 ár að fá skottuna okkar Rétt ný búin að komast að þessu en er strax orðin mega spennt! Hlakka til að kynnast ykkur!!! p.s. ég byrjaði akkúrat líka á þessu svæði þegar ég var ólétt af skottunni minni og eignaðist nokkrar MJÖG góðar vinkonur
|
|
|
Post by litlanaut on Aug 23, 2018 16:05:41 GMT
Sælar Ég er 29 ára og vinn sem lögmaður. Á fyrir 1 næstum 4 ára skottu (2014). Planið var alltaf að eignast annað barn á næstunni og lét ég taka lykjuna úr í maí sl. Bjóst svo engan vegin við að þetta tæki svona stuttan tíma en það tók um 1,5 ár að fá skottuna okkar Rétt ný búin að komast að þessu en er strax orðin mega spennt! Hlakka til að kynnast ykkur!!! p.s. ég byrjaði akkúrat líka á þessu svæði þegar ég var ólétt af skottunni minni og eignaðist nokkrar MJÖG góðar vinkonur p.s.2 ég gerði óvart sem guest áðan
|
|
|
Post by minddazzler on Aug 23, 2018 20:26:38 GMT
Hæhæ ég er 37 ára og þetta er barn nr.3 hjá mér en fyrsta hjá manninum mínum. Hin börnin mín eru 13 ára og 19 ára þannig að ég er að byrja pínu uppá nýtt 😊 Verð að viðurkenna að ég er frekar stressuð fyrir þessu!
|
|
kiki
New Member
Posts: 7
|
Post by kiki on Aug 24, 2018 15:27:06 GMT
Hæhæ, ég er 28 ára og er að koma með barn nr 2, en við eigum einn strák fyrir sem er 3,5 ars. Við erum mjög spennt og vonum að allt gangi upp, settur dagur 22 april.
|
|
|
Post by fyrsta on Aug 27, 2018 14:47:51 GMT
Sælar stelpur. Ég er 37 ára með fyrsta barn en annað barn mannsins míns. Það er mikil tilhlökkun á heimilinu 😊 settur dagur er 28 apríl. Fer í fyrstu skoðun eftir tvær vikur og er frekar spennt þar sem þetta er allt nýtt fyrir mér. Hlakka til að kynnast ykkur 🤗
|
|
|
Post by aprilbaun on Aug 27, 2018 19:11:54 GMT
Hæ hæ! Ég er 33 ára og á eina dóttur fyrir sem er nýorðin tveggja ára. Við búum í Bandaríkjunum og ég starfa við verkefnastjórnun. Settur dagur er 12. apríl. Ég lét taka lykkjuna úr í byrjun júní og fór bara einu sinni á blæðingar áður en ég varð ólétt! Bjóst alls ekki við því að þetta tæki svona stuttan tíma en einkennin eru nákvæmlega þau sömu og síðast svo ég var nokkuð viss um hvað var í gangi áður en ég pissaði á prófið Hlakka til að kynnast ykkur betur!
|
|
|
Post by mamma3 on Aug 30, 2018 17:19:04 GMT
Loksins get ég kynnt mig! Ég er að verða 37 ára og geng með 3 barn. Á einn 14 ára og eina 2 ára fyrir. Skv mínum útreikningum er ég sett 24-27 apríl.
|
|
|
Post by litlagrjon on Aug 30, 2018 20:25:40 GMT
Hæhæ, Ég er 30 ára. Fyrir eigum ég og maður minn 6 (bráðum 7 ára) stelpu og 4 ára strák. Við misstum líka litla stelpu eftir 14 vikna meðgöngu í september 2015 útaf alvarlegum fósturgalla. Þetta er fyrsta þungun síðan þá svo við erum pínu smeyk en hingað til lofar þessi meðganga góðu. Krílið var ekki beint planað, við ætluðum að byrja að reyna á þessu ári svo þetta var óvænt og skemmtilegt 😉
Annars hlakka ég mikið til að kynnast ykkur öllum.
|
|
|
Post by duedate0404 on Sept 8, 2018 10:50:10 GMT
Ég er 25 ára og er að ganga með mitt fyrsta barn. Varð ólètt miklu fyrr en ég bjóst við. Ég hætti á pillunni fór einusinni á blæðingar og búmm! Orðin ólétt. Við kærastinn erum mjög Spennt 😊
|
|
|
Post by April2019 on Sept 8, 2018 20:49:42 GMT
Hæhæ, ég er tvítug og á von á mínu öðru barni. Verð 21 þegar það kríli kemur Ég er komin 10 vikur í dag 😊 Mikið er ég ánægð að sjá þennan hóp hérna, er orðin virkilega spennt 🙈
|
|