|
Post by mamma3 on Aug 19, 2018 2:04:35 GMT
Var að pissa á prikið og er skv mínum útreikningi sett ca 24-27 apríl, en ég hef verið með óreglulegan tíðahring. Clearblue prófið sagði 2-3 vikur. En miðað við hinar 2 meðgöngurnar þá mun ég ekki eiga fyrr en í byjun maí...en það kemur bara í ljós.
|
|
litla
New Member
Posts: 10
|
Post by litla on Aug 19, 2018 8:34:37 GMT
regnbogabaun ég vona innilega að þessi baun haldi þér fast, hjálpar ekkert að taka hjartamagnyl? Hef heyrt að það hjálpi mörgum konum að halda óléttunni eftir einhverja missa.
|
|
dabba
New Member
Posts: 10
|
Post by dabba on Aug 19, 2018 22:00:29 GMT
Ég er samvkæmt mínum útreikningum sett 8. apríl Ég fer í fyrsta viðtal í mæðraverndinni eftir 3 vikur og pínu óþægilegt að vera ekki með neina aðra staðfestingu heldur en óléttupróf fyrr en þá... Er aðeins farin að finna fyrir ógleði en finnst alltaf fín regla að verða bara ekki svöng og borða því mjög reglulega og er þá skárri
|
|
|
Post by thridja on Aug 20, 2018 12:39:10 GMT
Samkvæmt blæðingum er ég sett 15 apríl, Hlakka til að fá það staðfest Til hamingju allar ❤
|
|
kiki
New Member
Posts: 7
|
Post by kiki on Aug 20, 2018 23:14:22 GMT
Ég er sett 22 april, fæ samt nánari útreiking 4 sept, þvi eg var bara komin 4,2 i fyrsta snemmsonar.
|
|
|
Post by regnbogabaun on Aug 21, 2018 22:17:08 GMT
Fór í snemmsónar í dag og er komin 6.6 vikur eða 4 dögum styttra en ég hélt svo settur dagur er núna 10. apríl. Jú, ég er að taka hjartamagnyl og búin að gera það í ca 10 mánuði eða síðan ég missti síðast
|
|
|
Post by litlanaut on Aug 23, 2018 16:12:25 GMT
ohh regnbogabaun vona svo innilega að þetta haldist hjá þér í þetta skiptið! ein erfiðasta tilfinning sem ég veit um er akkúrat að missa kríli þó það sé svona snemma sjálf er ég sett rétt um mánaðamótin apríl/maí, rétt komin 4 vikur!
|
|
|
Post by fyrsta on Aug 27, 2018 14:54:39 GMT
Samkvæmt útreikningum ætti settur dagur að vera 28 apríl. Ég fer í fyrstu skoðun eftir tvær vikur á heilsugæslunni. Vitið þið hvort sónar sé þar eða hvort ég þurfi að panta tíma hjá kvennsjúkdómalækni til að fara í sónar?
|
|
|
Post by aprilbaun on Aug 27, 2018 19:17:08 GMT
Ég á að eiga 12. apríl samkvæmt síðustu blæðingum. Er alveg að drepast úr ógleði, þarf eiginlega að pína mig til þess að borða Ég vona bara að þetta gangi yfir í kringum 12 vikurnar eins og á síðustu meðgöngu.
|
|
|
Post by mamma3 on Aug 30, 2018 17:22:29 GMT
Ég er sett í lok april. Skv ljósmóður þá er eg komin 6 vikur 1.sept, en það er miðað við venjulegan tíðarhring, en tíðarhringurinn hjá mér var 22-31 dagur mánuðina á undan svo ég er ekki alveg viss. Eins og er geri eg ráð fyŕir því að vera sett 27. April.
|
|
perla
New Member
Posts: 4
|
Post by perla on Sept 2, 2018 15:51:37 GMT
Ég er komin 7v+2d, er sett 20.apríl Fór í snemmsónar og fékk staðfestingu
|
|
|
Post by feiturkisi on Sept 3, 2018 17:39:59 GMT
Hæhæ, samkvæmt blæðingum a ég að vera kominn sirka 8-9 vikur þannig settur dagur er um 8-10 apríl. Ég fer í sónar og skoðun eftir tvær vikur og er mjög spennt. Þetta verður fyrsta barnið mitt
|
|
|
Post by rakel334 on Sept 4, 2018 22:13:46 GMT
Ég er sett 22. apríl Fór í snemmsónar í síðustu viku og var seinkað um viku.
|
|
|
Post by duedate0404 on Sept 8, 2018 10:44:59 GMT
Miðavið síðustu blæðingar væri ég sett 30mars en við snemmsónar var ég sett þann 4.Apríl 😊
|
|
|
Post by aprilbumba2019 on Sept 9, 2018 10:06:38 GMT
Samkvæmt mínum útreikningum er ég sett 6.Apríl. Ég fór í snemmsónar en það voru engin svör gefin upp nema að ég ætti að eiga í Apríl 😊
|
|