april
New Member
Posts: 10
|
Post by april on Aug 14, 2018 23:47:32 GMT
Hæ stelpur - hvað eruð þið komnar langt og hvenær eruð þið settar? Eruð þið búnar að fara til læknis og fá staðfestingu eða í snemmsónar?
|
|
litla
New Member
Posts: 10
|
Post by litla on Aug 15, 2018 11:28:20 GMT
Ég á pantaðan tíma í 9 mánuðum í snemmsónar þann 30 apríl en samkvæmt mínum útreikningum þá er ég sett 6 apríl og væri þá komin 6 vikur og 4 daga en svo kemur það betur í ljós eftir snemmsónarinn
|
|
april
New Member
Posts: 10
|
Post by april on Aug 15, 2018 14:03:51 GMT
Úúú en spennó Ég var samkv. mínum útreikningum komin 7v. og 1d í dag - en fór í snemmsónar í morgun þar sem hann staðfesti litla baun og hjartslátt <3 - þar breytti hann þessu í 6v. og 1d - Svo ég ætti því að vera sett 9 apríl Hvernig er þér að ganga?
|
|
litla
New Member
Posts: 10
|
Post by litla on Aug 15, 2018 14:29:58 GMT
Spennandi, ég á einmitt afmæli 9 apríl svo kannski fær maður barnið bara á afmælisdaginn Það gengur bara rosa vel, er svolítið þreytt, smá ógleði á kvöldin en þó minni en á síðustu meðgöngu, hvernig gengur hjá þér?
|
|
|
Post by ekkert on Aug 15, 2018 15:11:58 GMT
Skv. mínum útreikningum hefði settur dagur verið 2. apríl. Fór í snemmsónar í síðustu viku og ljósan setti mig 31. mars. Er skv. því komin 7v3d :-)
Ég varð fyrst slöpp núna um helgina, þá komin um 7v. Er með endalausa velgju sem endist nær allan daginn og er voðalega orkulaus. Ég hef samt mestar áhyggjur af því að ég er núna tvisvar búin að fá bleika útferð — mjög lítið, rétt svo í pappírinn og alls ekki þannig að ég þurfi bindi. Hafið þið einhverja reynslu af þessu? Mér var sagt að hafa engar áhyggjur, enda voða lítið hægt að gera hvað sem þetta svo sem þýðir. Mér finnst þessi óvissa bara svo vond.
|
|
|
Post by Bumbubaun on Aug 16, 2018 4:01:22 GMT
Samkvæmt minum útreikningum er ég komin 4v6d og er settur dagur samkvæmt ljósmóðir.is 19.april er að drepast úr ógleði sem kemur reyndar ekki á morgnanna eins og ég bjóst við.. heldur á kvöldin og nóttunni.. 😫 en annars þá er læknir ekki enn búinn að staðfesta kem í síma.. á tíma 29. 🙂🙂
|
|
|
Post by Bumbubaun on Aug 16, 2018 4:02:50 GMT
Úps ! Átti að vera : læknir hefur ekki staðfest nema í síma.. fékk semsagt símatíma til að róa taugarnar (fyrstabarn). En á tíma hjá lækninum 29.agust !
|
|
april
New Member
Posts: 10
|
Post by april on Aug 16, 2018 14:50:29 GMT
Þetta er einmitt fyrsta barn hjá mér líka, og ég vildi fara í snemmsónar bara til að fá alvöru staðfestningu frá lækni og vita að allt væri eðlilegt. Ég róaðist mikið við að sjá baunina og hjartsláttinn Það er búið að ganga mjög vel hjá mér þessar rúmu 6 vikur, mjög aum í brjóstum og finn smá ógleði/velgju ef ég verð svöng - annars bara ótrúlega fín (mjög þreytt samt!)
|
|
|
Post by bumbubaun on Aug 16, 2018 15:32:55 GMT
Ég get einmitt ekki beðið eftir að fá þessa staðfestingu á eftir að roa mig svo mikið
|
|
bob
New Member
Posts: 2
|
Post by bob on Aug 16, 2018 16:40:09 GMT
Var að fá jákvætt í gær og er bara komin 3v5d og ætti því að eiga 27. Apríl samkvæmt mínum útreikningum ef allt fer að óskum. Var að reyna og það virðist hafa tekist í fyrstu tilraun. Fyrsta barn, frekar stressuð. Ætla að gefa þessu nokkra daga áður en ég panta tíma í skoðun.
|
|
|
Post by Monsi on Aug 17, 2018 12:58:58 GMT
Er sett 17. apríl
|
|
|
Post by bumbubaun on Aug 18, 2018 1:02:29 GMT
Eru fleiri en ég að berjast við endalausa ógleði ? Hvað hafið þið gert til að laga hana :/? Eða minnka er að farast hérna Og annað! Hafið þið fengið eitthver crave? Sjálf held e gengu niðri nema kokoi mjólk 😂
|
|
|
Post by regnbogabaun on Aug 18, 2018 13:19:37 GMT
Hæ allar! Ég er sett 6. apríl! Er mjög spennt og pínu hrædd líka því þetta er mín 6. ólétta en ég á bara eitt barn fyrir, ég er sem sagt gjörn á að missa fóstur eða það er einhvað alvarlegt að fóstrum hjá mér. Ég er með alla putta og tær krossaðar og vona að þetta gangi allt vel í þetta skiptið Við eigum tíma í snemmsónar núna í vikunni og vonandi sjáum við flottan hjartslátt og allt er eins og það á að vera
|
|
april
New Member
Posts: 10
|
Post by april on Aug 18, 2018 15:27:26 GMT
Ég vona að það gangi vel hjá þér í þetta skiptið <3 Ertu yfirleitt að komast á þetta tímabil á óléttunni? Ég krossa puttana með þér <3 Ég er ekkert ælandi, finn fyrir ógleði inná milli en ekkert sem er að drepa mig - aðallega ef ég verð svöng Ég er ekki með nein crave (á það ekki að koma miklu seinna?) en ég finn að ég sæki meira í ferskan mat... er bara mjög sátt með það hahaha En vá hvað ég finn fyrir orkuleysi og þreytu! Eruð þið mikið að finna fyrir því?
|
|
|
Post by regnbogabaun on Aug 18, 2018 21:51:43 GMT
Ég er yfirleitt að missa á 6.-10. viku en það uppgvötast oft ekki fyrr en 2-3 vikum síðar. Ef ég er enn með óléttueinkenni (ógleði, þreytu, aum brjóst...) er ég mjög ánægð því þá er það merki um að fóstrið sé lifandi (ónákvæm vísindi en þó nokkuð rétt). Ég hef alveg farið í snemmsónar og 12. vikna sónar og fengið að vita að fóstið sé í raun búið að vera án hjartslátts í allt að 2 vikur. Ógleðin er ekkert að drepa mig núna á þessari meðgöngu, get alveg borðað (helling) og fæ frekar ógleði ef ég fæ mér ekki einhvað að narta á ca 3 tíma fresti. Svo er þreytan alveg að gera út af við mig. Ég er nánast án meðvitunar eftir vinnu á daginn!
|
|