gegg
New Member
Posts: 2
|
Post by gegg on Sept 12, 2018 13:21:37 GMT
Hæ, fyrsta barn okkar og eg komin 9 vikur a morgun. Mer finnst voðalega erfitt að halda þessu leyndu og langar að deila með fjölskyldu og vinum en svo situr það svo i mer að ef eitthvað gerist þá vil ég heldur að færri viti af þvi... minna um sorg og vonbrigði.. fyrir alla. Mer finnst erfiðast að þykjast liða venjulega þegar eg er i raun að drepast ur ogleði og þreytu og svoleiðis. Langar svo að hætta þessum "leikaraskap" Hvað hafið þið verið að gera með hverjum þið segið og hvenær?
|
|
|
Post by hnulli on Sept 12, 2018 15:24:09 GMT
Mikið skil ég þig vel. Við sögðum foreldrum okkar og systkinum snemma, eða um 7 vikur (eftir að við fengum staðfestingu í snemmsónar). Við umgöngumst allt þetta fólk mikið svo það hefði verið mjög erfitt að halda þessu leyndu, sér í lagi þegar mér leið sem verst. Mér var allavega mjög létt að segja þeim frá þessu. Við litum líka þannig á það að þetta væri fólk sem við vildum geta leitað til ef illa færi.
Við höfum ekki sagt öðrum frá hingað til nema einni vinkonu minni sem er líka ólétt og komin svipað langt. Ég er komin rúmar 11v núna. Ef allt kemur vel út í snemmsónar í næstu viku getum við farið að deila fréttunum með vinum og öðrum í fjölskyldunni.
|
|
|
Post by litlanaut on Sept 12, 2018 20:31:35 GMT
Við ákváðum að segja systkinum og foreldrum eftir snemmsónar. Lídur betur að nánasta viti uppá ef eitthvað kemur uppá. Erfitt að segja til um hvað er æskilegt og verður maður soldið að spila þetta eftir því hvað manni finnst þægilegt.
|
|
|
Post by duedate0404 on Sept 13, 2018 12:14:00 GMT
Ég var svo orkulaus og leið svo illa að ég ákvað að segja foreldrum mínum frá þessu um leið og við vorum búin í snemmsónar. Það létti á öllu þar sem þau höfðu áhyggjur af mér því mér hafði liðið svo illa, enn þau vissu auðvitað ekki ástæðuna.
Ef ég mun missa fóstrið þá mun ég vilja segja þeim frá því svo mér fannst við taka þetta ákvörðun með að segja þeim:) Núna er ég komin 11 vikur og ætla að bíða með að segja flestum þar til við erum búin í sónar (kemst samt ekki fyrr en á 14.viku þar sem ég verð í útlöndum 😩😩 mjög leiðinlegt að bíða extra haha)
|
|
|
Post by regnbogabaun on Sept 13, 2018 12:30:36 GMT
Yfirmaður minn og deildarstjór vita þetta, ólétt vinkona mín sem og þjálfarinn minn og ég fæ því að gera örlítið léttari æfingar. Svo var ég í einhverju spjall stuði þegar ég fór á snyrtistofu um daginn og sagði snyrtifræðingnum frá þessu haha! frekar random. Við höfum einmitt ekki sagt neinum því við erum enn svo hrædd um að missa
|
|
kiki
New Member
Posts: 7
|
Post by kiki on Sept 15, 2018 22:05:46 GMT
Ég er með hypromesis gravitarium svo eg verð ROSALEGA veik þegar ég er ófrísk þannig foreldrar, tengdo, systkini og bestu vinkonur hjá mér vita fra 5 viku þegar eg vissi enda búin að fara 3x uppá spítala nuna. Hefði örugglega haldið þessu leyndu lengur ef ég gæti, myndi samt alltaf segja mömmu og pabba.
|
|
litla
New Member
Posts: 10
|
Post by litla on Sept 16, 2018 17:17:57 GMT
Vinkonur mínar og foreldrar og systkini vita þetta og svo tilkynnum við öllum eftir 12 vikna sónarinn
|
|
|
Post by aprilbaun on Sept 17, 2018 16:48:05 GMT
Ég nenni ekki að vera í einhverjum feluleik svo það vita þetta flestir í kringum okkur - foreldrar mínir, tengdó, vinir okkar, starfsfólkið í leikskóla dóttur minnar. Ég er líka búin að vera ansi veik af ógleði svo þetta fer líklega ekkert á milli mála hvort eð er.
|
|
|
Post by rakel334 on Sept 20, 2018 19:55:51 GMT
Foreldrar fengu að vita þetta um 6-7 viku. Rest af fjölskyldu og ættingjum núna milli 8-9 viku. Finnst enginn tilgangur með að halda þessu leyndu fyrir nánasta fólki fram að 12 vikna sónarnum Aðrir fá að vita í kringum 12 viku.
|
|