|
Post by duedate0404 on Sept 8, 2018 10:56:36 GMT
Hæhæ, eru einhverjar sem þurfa að vera undir auknu eftirliti á meðgöngunni?
Ég sjálf er með 2 leg og 2 leghálsa sem gerir meðgönguna pínu áhættusama, aðalega á síðustu metrunum. Eru fleiri konur hérna svona tvöfaldar eins og ég 🤪
|
|
|
Post by regnbogabaun on Sept 9, 2018 16:42:50 GMT
Ég ætla að biðja um að vera í auknu eftirliti og mæðraskoðun upp á kvennadeild út af fyrri sögu um fósturmissi og fósturgalla og litningagalla. Vonandi gengur þér vel duedate0404
|
|
|
Post by aprilbumba on Sept 9, 2018 19:36:55 GMT
Ég er með pcos og er því í pínu áhættu en er ekki í neinu auknu eftirliti, fyrsta skipti sem ég verð ófrísk þannig hef enga reynslu á fósturmissi.
|
|
|
Post by tmg on Sept 10, 2018 14:33:18 GMT
Ég þarf einmitt líka að vera í auknu eftirliti, misstum í júní eftir rúmlega 14 vikna meðgöngu og það veit enginn afhverju
|
|
|
Post by regnbogabaun on Sept 10, 2018 22:27:11 GMT
Get ég bara óskað eftir því að vera í auknu eftiliti og eru miklar líkur á því að mér verði neitað um það?
|
|
|
Post by duedate0404 on Sept 13, 2018 12:17:30 GMT
Rosalega geta verið margar ástæður! Ég held að það sé alltaf hægt að panta tíma hjá fæðingarlækni og fara yfir málin með honum enn ef hann sér enga ástæðu fyrir auknu eftirliti þá efast ég um að það sé hægt. En ég er svo sem ekki viss.
|
|
|
Post by regnbogabaun on Sept 13, 2018 12:27:41 GMT
Ég var hjá fæðingarlækni í morgun og hún sá ekki ástæðu til að ég ætti að vera í auknu eftirliti en ég fæ að hitta ljósuna mína oftar
|
|
kiki
New Member
Posts: 7
|
Post by kiki on Sept 15, 2018 22:10:14 GMT
Ég er í auknu eftirliti í mæðraverndinni til að byrja með, svo ætla þær að sjá hvernig þetta þróast vegna seinustu meðgöngu en eg er með hypramesis gravitarium og ældi ALLA meðgönguna seinast og var lögð margoft inna spítala, var með of hraðann hjartslátt sem orsakaði yfirlið frá 1- 5x á dag, of lágann blóðþrýsting, of blóðlítil og almenn ömurlegheit.
|
|